Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Geta konur orðið óléttar þótt þær hafi aldrei farið á túr?

VIÐBURÐADAGATAL H.Í.

VIÐBURÐADAGATAL H.Í.
Innskráning í Uglu:

Hvar liggur valdið? 08.02.2004

Hvar liggur valdið?

Föstudaginn 6. febrúar s.l. efndu forsætisráðuneytið og Háskóli Íslands, Lagastofnun og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála til ráðstefnu í tilefni af aldarafmæli heimastjórnar og þingræðis á Íslandi. Hér er hægt að hlusta á upptöku af ráðstefnunni, en nánari lýsingu á henni er að finna hér fyrir neðan.

Fyrsti hluti
Annar hluti
Þriðji hluti
Fjórði hluti

Þegar Stjórnarráð Íslands var sett á stofn og íslenskur ráðherra, búsettur hér á landi, tók við embætti 1. febrúar 1904 var það meirihluti Alþingis sem réð því, í fyrsta sinn, hver gegndi því ráðherraembætti, sem málefni Íslands heyrðu undir. Þingræðið er því jafn gamalt heimastjórninni og efnt er til ráðstefnunnar í tilefni þess. Viðfangsefni hennar er samskipti þingsins og framkvæmdarvaldsins. Hver eru áhrif þingsins á stjórnsýslu ríkisins? Hver er hlutdeild framkvæmdarvaldsins í löggjafarvaldinu? Til samanburðar verður fjallað um þróun þingræðis í Danmörku. Að erindum afloknum munu fulltrúar hins pólitíska lífs velta því fyrir sér hvort valdið hafi færst frá Alþingi hin síðari ár yfir til stjórnsýslunnar eða öfugt.

13:30: Ráðstefnan sett: Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands

13:45: Ávarp: Davíð Oddsson, forsætisráðherra

14:00: Þróun þingræðis í Danmörku og staða þjóðþingsins gagnvart framkvæmdarvaldinu: Jens Peter Christensen, prófessor við Háskólann í Árósum. Í erindinu, sem flutt verður á dönsku, mun þessi danski stjórnlagafræðingur fjalla um þróun þingræðis í Danmörku, ekki síst í ljósi þeirrar staðreyndar að minnihlutastjórnir hafa yfirleitt setið þar við völd hin síðari ár. Meðal annars mun hann ræða um breytingar á hlutverki þjóðhöfðingjans við myndun ríkisstjórna, áhrif þingsins á störf framkvæmdarvaldsins og áhrif stjórnsýslunnar á lagasetningu og önnur störf þjóðþingsins.

14:30: Áhrif Alþingis á framkvæmdarvald og stjórnsýslu: Páll Hreinsson, prófessor H.Í.

14:45: Áhrif framkvæmdarvaldsins á löggjafarvaldið: Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor H.Í.

15:00: Kaffi

15:25: Pallborðsumræður: Hvar liggur hið pólitíska vald? Hefur valdið færst frá Alþingi til stjórnsýslunnar hin síðari ár eða er þessu öfugt farið? Inngangur: Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri. Þátttakendur auk hans: Birgir Ármannsson, alþingismaður, Jónína Bjartmarz, alþingismaður, Margrét Sverrisdóttir, varaþingmaður, Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og Þórunn Sveinbjarnardóttir alþingismaður.

Umræðustjóri: Björg Thorarensen, prófessor H.Í.

16:25: Lokaorð: Eiríkur Tómasson, prófessor og deildarforseti H.Í.

16:40: Móttaka og léttar veitingar.