 |
 |
 |
|
|
Háskólinn í hnotskurn Háskóli Íslands er elsti, stærsti og fjölbreyttasti háskóli á Íslandi, stofnaður 1911. Þar er boðið fjölþætt grunnnám fyrir stúdenta að loknu stúdentsprófi og framhaldsnám til meistara- og doktorsprófs. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu, en við Háskólann eru starfræktar um 40 rannsóknastofnanir.
Háskóli Íslands er lifandi stofnun þar sem lögð er stund á flestar vísinda- og fræðigreinar í sterkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf á Íslandi. Við Háskólann er hópur vel menntaðra og þjálfaðra kennara og vísindamanna, löng rannsóknahefð og mikið samstarf við erlenda háskóla. Stúdentum sem stunda þar nám gefst kostur á að sækja hluta af námi sínu til viðurkenndra erlendra háskóla.
|
|
|