Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hvađ búa margir Íslendingar í útlöndum?

HÁSKÓLI ÍSLANDS

HÁSKÓLI ÍSLANDS
Innskráning í Uglu:

Fjarnám í boði 2007-2008

Háskóli íslands og Kennaraháskóli Íslands sameinast þann 1. júlí 2008. Kennaraháskóli Íslands hefur langa reynslu í fjarkennslu á flestum námsbrautum skólans í grunn- og framhaldsnámi. Námsbrautir Kennaraháskólans fara undir Menntavísindasvið og þar verður hægt að nálgast upplýsingar um námið.

Umsóknarfrestur fyrir nýnema í fjarnám á haustmisseri 2008 lýkur 5. júní næstkomandi og fer árleg skráning í grunnnám á haust- og vormisseri 2008-2009 fram 31. mars - 4. apríl. Upplýsingar um skráningarfrest í framhaldsnám má sjá á vefsíðum deilda. Skráning í fjarnám í grunn- og framhaldsnámi fer fram á vefkerfi Háskólans, Uglunni.


Skráning
Þeir sem hyggjast sækja um fjarnám vinsamlegast fyllið út rafræna umsókn. Þegar nemendur hafa fengið inngöngu í skólann geta þeir sótt um aðgangsorð til Reiknistofnunnar til að komast inn á Ugluna, innri vef skólans. Nýskráning stúdenta fer fram á vef Háskóla Íslands eða hjá Nemendaskrá Háskólans á jarðhæð Háskólatorgs. Umsóknarfrestur er til 5. júní 2008. Nánari upplýsingar fást hjá Nemendaskrá.

Inntökuskilyrði
Sömu almennu kröfur eru gerðar til allra nemenda þegar þeir hefja nám við Háskóla Íslands. Stúdentar sem hefja nám í Háskóla Íslands skulu hafa lokið stúdentsprófi eða öðru sambærilegu prófi frá erlendum skóla (sjá inntökuskilyrði).

Upphaf kennslu
Kennsla í fjarnámi hefst að öllu jöfnu á sama tíma og kennsla í staðbundu námi. Á heimasíðum deilda eru upplýsingar um upphaf kennslu ásamt upplýsingum um kennslu í einstaka skorum.

Kennslumiðstöð
Á heimasíðu Kennslumiðstöðvar eru birtar ýmsar upplýsingar er varða fjarnám. Ef spurningar vakna er hægt er að senda tölvupóst á kemst@hi.is eða hringja í síma 525 5247 og 525 4447.

Námsráðgjöf
Námsráðgjöf er fyrsti áfangastaður margra stúdenta sem hyggja á háskólanám. Allir nemendur, líka fjarnemendur, hafa aðgang að námráðgjöf. Námsráðgjöf býður meðal annars: 

  • Ráðgjöf vegna námsvals
  • Ráðgjöf um vinnubrögð í háskólanámi
  • Persónuleg og sálfræðileg ráðgjöf
  • Ráðgjöf og úrræði vegna fötlunar og sérþarfa
  • Starfsráðgjöf og ráðgjöf um gerð atvinnuumsókna

Landsbókasafn Íslands
Þeir sem skráðir eru í  fjarnám við Háskóla Íslands hafa sömu réttindi og skyldur við Landsbókasafn Íslands og aðrir nemendur háskólans og leitast er við að veita þeim sambærilega þjónustu.