Flýtileiðir á vef Háskóla Íslands:


Flýtileiðir:

Fara efst a siðu

Spurning af vísindavef:

Fara efst a siðu
Vísindavefurinn
Hvað getur þú sagt mér um gæsir?

HÁSKÓLI ÍSLANDS

HÁSKÓLI ÍSLANDS
Innskráning í Uglu:

Rannsóknastofnanir

Alþjóðamálastofnun
Vettvangur rannsókna og fræðslu um alþjóðamál.

Bókmenntafræðistofnun
Kennsla og rannsóknir á íslenskum bókmenntum og almennri bókmenntafræði. 

Félagsvísindastofnun
Sinnir útgáfustarfsemi á sviði félagsvísinda og hagnýtar sem fræðilegar rannsóknir í félagsvísindum. 

Guðfræðistofnun
Rannsókna-, þjónustu- og kennslustofnun í guðfræði og greinum henni skyldum sem stundaðar eru í guðfræðideild. 

Hagfræðistofnun
Rannsóknir í hagfræði og öflun þekkingar á þjóðarbúskap Íslendinga.

Háskólasetrið í Hveragerði
Umhverfis- og vistfræðirannsóknir á hverum. 

Heimspekistofnun
Rannsóknir í heimspeki og er ráðgefandi varðandi kennslu, námsefni og próf í heimspeki í skólum landsins. Útgáfa ritverka um heimspekileg málefni. 

Hugvísindastofnun
Vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á fræðasviðum hugvísindadeildar. Veitir aðildarstofnunum og fræðimönnum þjónustu og aðstoð við verkefni sem tengjast rannsóknum og gengst fyrir ráðstefnum, málstofum og útgáfu fræðirita.

Íslensk málstöð
Sjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Jarðvísindastofnun Háskólans
Stundar rannsóknir og kennslu á sviði jarðvísinda með áherslu á jarðfræðilegar aðstæður Íslands og nánasta umhverfi þess.

Lagastofnun
Vísindaleg rannsókna- og kennslustofnun í lögfræði og skyldum greinum.

Lífeðlisfræðistofnun
Veitir öllum fastráðnum kennurum Háskólans í lífeðlisfræði rannsóknaraðstöðu. Einnig getur stjórn stofnunarinnar veitt vísindamönnum á öðrum fræðasviðum aðstöðu eftir því sem aðstæður leyfa og efni standa til.

Lífefna-og sameindalíffræðistofa
Rannsóknarstofan er starfsvettvangur kennara fræðasviðsins í lífefnafræði, meinefnafræði og erfðalæknisfræði við læknadeild.

Líffræðistofnun
Eflir rannsóknir og kennslu í líffræði á Íslandi. Jafnramt tekur stofnunin að sér rannsóknir á hagnýtum sviðum líffræðinnar.

Lyfjafræðistofnun HÍ

Mannfræðistofnun

Rannsóknir á sviði félagslegrar og líffræðilegrar mannfræði.

Mannréttindastofnun HÍ
Vinnur að rannsóknum á lögfræðilegum þáttum mannréttinda, annast dreifingu á niðurstöðum þeirra og styður kennslu á þessu sviði.

Málvísindastofnun
Grundvallarrannsóknir í íslenskum og almennum málvísindum. 

Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn
Vinnur í nánu samstarfi við Líffræðistofnun að rannsóknum á Mývatni og umhverfi þess. 

Norræna eldfjallasetrið
Samnorræn stofnun er hefur það hlutverk að stunda rannsóknir í eldfjallafræði með áherslu á bergfræði, jarðefnafræði, jarðeðlisfræði og eldfjallasögu.

Orðabók Háskólans
Sjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði

Á vegum Rannsóknarmiðstöðvar í jarðskjálftaverkfræði, sem staðsett er á Selfossi, er unnið að fjölfaglegum rannsóknum á eðli og áhrifum jarðskjálfta.

Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd
Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd hefur það að markmiði að efla fjölskyldurannsóknir í félagsráðgjöf. Fjölskyldurannsóknir fjalla um samskipti og samspil í fjölskyldum og taka til allra aldurshópa og lífsskeiða.

Rannsóknasetur í fötlunarfræðum

Rannsóknasetur um lífshætti barna og ungmenna

Rannsóknasetur um smáríki
Markmið rannsóknasetursins er að auka rannsóknir og fræðslu í smáríkjafræðum (small state studies).

Rannsóknasetur Vestmannaeyja
Útibú Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum. Áhersla er lögð á rannsóknir og rannsóknatengt nám í náttúruvísindum og greinum sem tengjast atvinnulífinu í Eyjum.

Rannsóknastofa í heilbrgiðisfræði
Rannsóknastofan er starfsvettvangur kennara fræðasviðanna faraldsfræði og heilbrigðisfræði.

Rannsóknastofa í hreyfivísindum

Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum
Öflun og miðlun þekkingar á sviðum kvenna- og kynjafræða.

Rannsóknastofa í klínískri lífefnafræði

Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði
Í stofunni er unnið að grunn- og þjónusturannsóknum í líflyfjafræði, réttarefnafræði og eiturefnafræði.

Rannsóknastofa í matvælaefnafræði

Rannsóknastofa í meinafræði

Rannsóknastofa í næringarfræði

Rannsóknastofa í ónæmisfræði

Rannsóknastofa í sýklafræði

Rannsóknastofa í veirufræði

Rannsóknastofa í vinnuvernd
Rannsóknastofa í vinnuvernd (RIV) er vísindaleg rannsókna- og fræðslustofa sem er starfrækt af Vinnueftirlitinu og Háskóla Íslands.

Rannsóknastofa Krabbameinsfélags Íslands í sameinda- og frumulíffræði
Rannsóknir sem auka þekkingu og skilning á eðli krabbameins.

Rannsóknastofa um mannlegt atferli
Rannsóknir og (líkana og hugbúnaðar) þróun varðandi skipulag mannlegs samskiptaatferlis.

Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði
Hlutverk hennar er að efla tengsl rannsókna og kennslu og samhæfa rannsóknir í hjúkrunar- og ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands.

Raunvísindastofnun Háskólans
Á Raunvísindastofnun eru stundaðar grunnrannsóknir í raunvísindum.

Rannsóknastofnun um lyfjamál

Sagnfræðistofnun
Annast rannsóknir í sagnfræði og gengst fyrir ráðstefnum, námskeiðum, fyrirlestrum og hvers kyns annarri starfsemi sem kynnir sagnfræði fyrir almenningi.

Siðfræðistofnun
Rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun, er meðal annars vettvangur þverfaglegs samstarfs á sviði siðfræði.

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Hlutverk Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er að vinna að rannsóknum í íslenskum fræðum og skyldum fræðigreinum, einkum á  sviði íslenskrar tungu og bókmennta, að miðla þekkingu á þeim fræðum  og varðveita og efla þau söfn sem henni eru falin eða hún á.

Stofnun fræðasetra við Háskóla Íslands

Stofnun Sigurðar Nordal
Sjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála.
Meginmarkmið Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála er að efla kennslu og rannsóknir í stjórnun opinberra stofnana, bæði ríkis og sveitarfélaga.

Stofnun Sæmundar fróða
Meginhlutverk stofnunarinnar er tvíþætt: að stuðla að rannsóknum og samstarfi um hina ýmsu þætti sjálfbærrar þróunar og að vera vettvangur fyrir þverfræðilegar rannsóknir háskólakennara og sérfræðinga.

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum
Rannsóknir á erlendum tungumálum. Meðal rannsóknasviða eru: málvísindi, bókmenntir og menningarfræði, notagildi erlendra tungumála í atvinnulífi, kennsla erlendra tungumála og þýðingar. Útgáfa rita um sama efni. Ráðgjöf um framangreind fræðasvið.

Tannlækningastofnun
Rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun í tannlæknisfræði og skyldum greinum sem stundaðar eru við tannlæknadeild.

Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum
Meginviðfangsefni eru rannsóknir og greining sjúkdóma í dýrum og framleiðsla bóluefna gegn sauðfjársjúdómum.
Tungutæknisetur
Tungutæknisetur er samstarfsvettvangur Málvísindastofnunar Háskólans, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík um rannsóknir og þróun í tungutækni.

Verkfræðistofnun Háskóla Íslands
Rannsóknir og þróunarstarfsemi á sviði tækni og verkvísinda.

Viðskiptafræðistofnun
Vettvangur til að sinna rannsóknum, samhæfa þær og kynna niðurstöður þeirra. Stofnunin myndar einnig tengsl í viðskiptafræðum og skyldum greinum milli deildarinnar og aðila utan hennar gegnum þjónusturannsóknir, ráðgjöf og álitsgerðir.

Örnefnastofnun
Sjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum